Systkinin í júní

Hvað leynist þarna undir sófanum ásamt öllu draslinu? Það skyldi þó ekki vera María?

Jú, jú og hún er steinsofandi!!! Unga daman skreið þarna undir í smá fýlukasti sem greinilega hefur aðallega orsakast af mikilli þreytu því aðeins nokkrum augnablikum síðar var hún steinsofnuð!!!

Hugi gægist bak við gardínu.

Það tókst loksins að klippa drenginn þó það hafi reyndar kostað töluverðan grát og gífurlega sorg! Það liggur við að öll fjölskyldan þurfi að fá áfallahjálp eftir heimsókn á hárgreiðslustofuna með Huga!

Tveir vinir ... og báðir í afslöppun!