Síðustu sumarmyndirnar

Þá er sumarið formlega búið og haustmánuðirnir hafa tekið við. Hér eru nokkrar myndir af Bárugötunni sem teknar voru þessa síðustu daga í ágúst.

Síðustu helgina í ágúst fengum við góða gesti í eftirmiðdagskaffi til okkar. Þá komu Ölvir, Eva og Emil frændi í heimsókn til okkar. Krakkarnir voru rosalega góð að leika sér saman!

Frændurnir! Emil er eitthvað að skemmta Huga sýnist mér!

Hugi fór í fýlu við mömmu sína og fann þennan ágæta fýlustað!

Þarna sat hann og vorkenndi sér heil ósköp!

Hugi er líka orðinn alveg ótrúlegur apaköttur og er nánast farinn að klifra upp lóðrétta veggi!

Sko þetta er að hafast!

Takmarkinu náð og Hugi er alsæll! Hér á heimilinu gengur hann undir nafninu Spiderman!

Systkinin saman. María er búin að vera pínu lasin og var því eitthvað örlítið orkuminni en litli bróðir!