Septemberdagbók

                   2009   

 

 

Forsíða

Um okkur

Mín síða

Myndirnar okkar

Hafðu samband

Gestabókin okkar

 

17. september 2009

Nýjungar

Það er haust á okkar síðu og því fylgja ýmsar nýjungar. Stærstu breytingarnar eru auðvitað á forsíðunni en hana prýða nú fimm myndir! Og hafi nafn litlans okkar farið fram hjá einhverjum lesendum þá er það meðal annars þar að finna. Með stækkandi fjölskyldu hafa svo auðvitað orðið vissar breytingar á liðnum Um okkur.

Ég bætti svo við einum hlekk hér neðst í dálkinn til vinstri. Það er hin ótrúlega frábæra síða Druslubækur og doðrantar þar sem ótrúlega frábærar stelpur skrifa um um bókmenntir - bæði frábærar og ófrábærar! Ég á að vísu bara eina færslu enn sem komið er en pistill númer tvö er vel á veg kominn og ef fram heldur sem horfir mun hann örugglega birtast ekki síðar en í október 2011. Ég er annars alltaf með einhverjar síður í huga sem mig langar að bæta á listann minn en á ögurstundu man ég aldrei neitt.

Og að lokum eru hér nýjar myndir:

London calling

Stórborgarferð og fleira

 

Forsíða      Um okkur      Mín síða      Myndirnar okkar      Hafðu samband      Gestabókin okkar