Októbermyndir
Hugi færði sig upp um erfiðleikastig í púsli í dag. Fór úr trépúslunum yfir í svona pappapúsl. Þetta var náttúrulega svolítið erfitt fyrir hann en þetta er maður áskoranna svo það var ekki um það að ræða að gefast upp!
Þetta er nú samt svolítið fyndið!
Sætasti púslarinn.
Það hefur aðeins hallað á Maríu í myndafjölda hér á síðunni okkar að undanförnu. Bætt úr því allsnarlega!
Af Maríu er það helst að frétta að hún er farin að huga að framtíðinni og væntanlegum starfsferli. Eins og staðan er í dag þykir henni líklegast að hún muni annað hvort verða prinsessa eða ballettkona! Þar hafið þið það!!!!
Systkinin sæt og kát saman eftir skemmtilegan dag á leikskólanum.
Á þessari mynd er Hugi um það bil að bera fram orðið „bussur“ og sýnir þær um leið!
Sami svipur!
Þann 22. október varð Hugi veikur. Hann var nú sæmilega hress fram að hádegi en þá tók að halla undan fæti. Það er samt ótrúlegt hvað hann ber sig vel þrátt fyrir háan hita líkt og eftirfarandi myndir bera vitni um. Maður er nú samt ótrúlega sybbinn þegar maður er svona mikið veikur.
Mamma söng óskalagið „Alli gakka leik“ (Allir krakkar ... í skessuleik) svolítið oft í dag!
Þegar maður er lasinn getur verið notalegt að koma sér fyrir í mömmurúmi og skoða bækur. Á myndinni má sjá Huga skoða „disabittanna“ (kisa-bjartur-þarna, svolítið mikil krókaleið að því að segja orðið kisa)!
31. október reis Hugi loks úr rekkju eftir mikil veikindi og sneri aftur á Drafnarborg. María var hins vegar enn lasin og þurfti að vera heima með mömmu. Það er nú kannski ekki alslæmt, a.m.k. fundum við okkur nóg að gera! Pabbi kom heim í hádeginu til að kíkja á sjúklinginn og þá fékk María að prófa húfuna hans. Hlustun og hitamælingar gáfu til kynna að innlögn væri óþörf!
Mæðgurnar ákváðu því að skella í nokkra kanilsnúða. Hér er María að hita saman mjólk og smjör.
Snúðarnir tilbúnir, namm!
Og loksins kom Hugi bróðir heim úr leikskólanum og þá var nú tilveran örlítið skemmtilegri. Svo vonum við bara heitt og innilega að þessum veikindadögum fari að ljúka og að allir geti snúið til sinna starfa innan skamms!