Nokkrar myndir af Maríu og Huga

Að undanförnu hefur vefsíðustjórinn staðið sig óvenju illa í að setja inn myndir af börnunum að gera eitthvað ósköp hversdagslegt. Hér verður snarlega bætt úr því.

María kúrir sig á náttfötunum uppi í sófa og horfir dreymin út í loftið.

Myndavélabrosið ... alveg vonlaust að fá hana til að brosa venjulega þegar myndavél er nálægt!!!

Hugi fór loks í klippingu! Hann var orðinn ansi lufsulegur greyið en getur nú séð út fyrir hári.

Rosa fínn og sætur ... og aldrei slíku vant fékkst hann til að brosa í myndavélina og vera kyrr nógu lengi til að það næðist að smella af!

Allt í drasli! Er búin að hugsa mikið um hvað þessi mynd væri fín ef það væri ekki þessi bévítans þvottakarfa í baksýn!!!