María fjögurra ára

Loksins rann hinn langþráði afmælisdagur upp, bjartur og fagur! Að sjálfsögðu var byrjað á afmælissöngnum en síðan tók við heitt kakó og pakkaopnun!

 

Það biðu fjórir afmælispakkar eftir prinsessunni þegar hún vaknaði, þar á meðal einn alveg risastór!

Skvísan var nú ekki alveg vöknuð þegar það var byrjað að opna þann fyrsta ...

... en upp úr honum kom þetta úr sem sló alveg í gegn!!!

Hugi lét sér hins vegar fátt um finnast og sötraði bara kakóið sitt pollrólegur!

Hvað skyldi svo standa á þessu korti? Æsingurinn orðinn allt of mikill til að litli lestrarhesturinn geti einbeitt sér að því að finna það út!

Sá stóri afhjúpaður ...

... en hvað í ósköpunum er þetta?!

Jú, þessi líka forláta dúkkuvagn fyrir Míu Maríu og öll hin börnin!

Hvað skyldi klukkan vera ... ætli við séum að verða of sein á leikskólann?

Sæta afmælisprinsessan ánægð með vel heppnaðan afmælismorgun!