2012
|
||
Forsíða |
Föstudagurinn 18. maí 2012 Úr dagbók Konsulenta í maí
Danssýning hjá Huga Baka 60 kanelsnúða fyrir fjáröflun bekkjarins hennar Maríu Hugi í bekkjarferð um Uppsali María á verðlaunaafhendingu World's Children's Prize í Mariefred þar sem hún fer á stjórnarfund, heldur ræðu fyrir drottninguna og fer í dinner á eftir. Foreldrar og bræður fylgja með og gera ráð fyrir að vera á ferðinni frá kl. 06-23 Foreldrasamtal með Huga Einar í þriggja daga vinnuferð til Riga Hugi í aðra bekkjarferð um Uppsali Baldur Tumi verður 3ja ára Baldur Tumi í 3ja ára skoðun Hugi í bekkjarferð á Tom Tits í Södertälje Einar á vakt Opið hús í Vänge skola með einni vakt í leikfimisalnum og einni í kökuhappdrættinu fyrir okkur foreldrana Herregud! Allt er þetta að vísu mjög skemmtilegt en krefst óneitanlega skipulagningar og vinnu. Fimm atriðum á listanum hefur þegar verið lokið en hin tólf eigum við eftir að klára á þeim þrettán dögum sem eftir eru af mánuðinum! Það góða við þetta er að þið megið væntanlega búast við líflegum maímyndaalbúmum! Það er þá eins gott að ég er loks búin að setja inn allar aprílmyndirnar: Góðir straumar vel þegnir!
Forsíða Um okkur Mín síða Myndirnar okkar Hafðu samband Gestabókin okkar
|
|
|