Júnídagbók 

                                            2012

                   

Forsíða

Um okkur

Mín síða

Myndirnar okkar

Hafðu samband

Gestabókin okkar

 

Laugardagurinn 30. júní 2012

Ég er á eftir áætlun ...

langt á eftir áætlun! En hér koma allar maímyndirnar:

María í Mariefred

Baldur Tumi þriggja ára

Margt og mikið í maí

Júní skilar sér vonandi fljótlega!

 

Sunnudagurinn 3. júní 2012

Við komumst í gegnum maí. Erum búin að sjá kusur, Veronicu Maggio, Riga, leiklistar- og danssýningar, Mariefred og drottninguna ... meðal annars! Bráðum koma myndir af öllu þessu en fyrst er hér glænýtt handavinnualbúm:

Handavinna janúar til maí 2012

Dagbók júnímánaðar er nánast tóm fyrir utan skemmtilega heimsókn góðra vina sem koma til okkar eftir bara fjóra daga! Ég krossa fingur að sírenurnar verði enn í blóma þá og helst að snækórónan og rósarunninn úti við garðshlið verði sprunginn út!

 

Forsíða     Um okkur     Mín síða     Myndirnar okkar     Hafðu samband     Gestabókin okkar