Bolludagar
Hér á Konsulentvägen var bolludegi fagnað tvo daga í röð, fyrsta á sænska vísu, svo á íslenska!
Á laugardeginum fyrir bolludag héldum við sænskt bollukaffi með semlum sem við bökuðum sjálf í fyrsta sinn. Stellið fína var að sjálfsögðu dregið fram sem og gæsaglösin!
Á borðum voru túlípanar og pílviðargreinar.
Baldur Tumi þjófstartaði í bolluátinu og tók hraustlega á semlunni!
Aumingja Hugi minn var hins vegar fárveikur þessa helgi og vikuna á eftir og kúrði sig bara undir sæng í sófanum og fékk semlusendingu þangað.
Ég smellti mynd af okkur hinum þar sem við sátum við borðið ... ja nema Baldur Tumi sem verður svo æstur að fá að sjá myndirnar af sér að hann leggur af stað til að skoða áður en næst að taka nokkra einustu mynd! Ég veit ekki hvað oft ég hef reynt að útskýra þetta lögmál fyrir honum háorgandi!
Okkur þótti frumraunin í semlugerð takast býsna vel. Og nammm hvað þær voru góðar! Fyrir þá sem ekki hafa enn fengið að bragða upplýsist hér með að deigið er hefðbundið snúðadeig með miklu magni af steyttum kardimommufræjum. Á milli er svo möndlumassi og rjómi og flórsykur ofan á.
Mikið er ég heppin að eiga svona fínan dreng! Mér finnast þessar myndir af honum allar afskaplega fallegar ... þótt hann sé útklíndur í rjóma!
Það er ekkert smá mikið mál að klára eina svona semlu!
Og þegar maður verður var við að mamma er búin að taka fullt af myndum af manni þá þarf að sjálfsögðu að fá að sjá þær á skjánum!
Ahbú!
Daginn eftir borðuðum við okkar hefðbundu vatnsdeigsbollur með glassúr, sultu og rjóma. Hugi var nógu hress einmitt á þessu augnabliki til að sitja með okkur en hann var annars að ganga í gegnum verstu veikindi sem hann hefur upplifað síðan hann var sirka þriggja ára!
Nammmm!!!
Að lokum er hér eitt vídeó af Baldri Tuma frá fyrri bolluátsdeginum. Ég elska þetta vídeó! Maður sér svo vel framan í hann og heyrir nokkur týpísk Baldurs Tuma hljóð og umfram allt er það eitthvað svo hversdagslegt, bara hann að gæða sér á bakkelsi og eiga samskipti við okkur hin. Smjatthljóðið sem hann gerir þarna í upphafi gerir hann yfirleitt þegar hann sér einhvern borða og næstum alltaf þegar hann sér einhver dýr. Ég held að fyrir honum hljóti skilgreiningin á dýrum að vera „verur sem borða“! Honum sjálfum finnst þetta vídeó ótrúlega meiriháttar og hlær og hlær í hvert sinn sem hann heyrir sjálfan sig gefa frá sér einhver hljóð!