Beðið eftir ömmu

Amma á Bakkastöðum kom frá Frakklandi í gær og mætti að sjálfsögðu strax í heimsókn til ömmukrílanna. Það var gífurlegur spenningur hér á meðan beðið var eftir henni og hangið úti í glugga, jafnvel reynt að kalla á hana þaðan!

María skimaði í allar áttir og hafði auga með allri umferð um götuna. Hugi var kannski ekki alveg eins einbeittur í biðinni þó hann væri vissulega spenntur að hitta ömmu sína.

Þau gáfu sér þó smá tíma til að líta upp til mömmu sem að sjálfsögðu var mætt á svæðið með nýju myndavélina!!!

Hugi er sætur!

María starir enn einbeitt út um gluggann en Hugi er bara kominn í eitthvað grín!

Amma birtist svo að lokum og fagnaðarlætin urðu gríðarleg, hrópað út um gluggann og hlaupið alla leið út til að taka á móti henni!!!